Skilmálar

Marald ehf.
510822-0800
Álalind 16,
201 Kópavogur
Sími: 849-3265
haakaa@haaka.is

Marald ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Marald ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Marald ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Kvartanir
Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum leyst málið.


Verð á vöru og sendingakostnaður

Vinsamlegast athugið að verð getur breyst án fyrirvara. Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Dropp, en einnig er í boði að sækja. 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.

Trúnaður (öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness. Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.